03/12/2020
Lokunarstyrkir
Frumskilyrði
1. Umsækjandi þarf að bera ótakmarkaða skattskildu hér á landi. – Með ótakmarkaðri skattskyldu er átt við að viðkomandi einstaklingur eða lögaðili sé skyldugur að greiða tekjuskatt af öllum tekjum sínum hér á landi, hvar sem þeirra er aflað. Þetta þýðir að óskattskyldir aðilar, eins og t.d. íþróttafélög, líknafélög ofl. Eiga ekki rétt á lokunarstyrk.
2. Atvinnurekstur eða sjálfstæð starfsemi. – Þeir einir geta sótt um lokunarstyrk/viðbótarstyrk sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi. Með því er átt við starfsemi aðila sem greiðir laun samkvæmt staðgreiðslulögum, og er skráður á launagreiðendaskrá, svo og á virðisaukaskattskrá þegar það á við.
Nánari skilyrði
1. Skylt að stöðva starfsemi. -Skilyrði að rekstraraðila hafi verið skylt að loka samkomustað samkvæmt auglýsingu heilbrigðisráðherra nr. 243/2020, eða að láta af starfsemi eða þjónustu vegna sömu auglýsingu á grundvelli sóttvarnarlaga.
2. Tekjufall – skilyrði er að tekjur rekstraraðila hafi verið a.m.k. 75% lægri í apríl 2020 en í apríl 2019. Ef rekstraraðili hóf störf eftir apríl 2019 er notuð meðaltalsregla til að finna viðmiðunarupphæð.
3. Tekjur á rekstrarárinu 2019. – Skilyrði er að tekjur rekstraraðila á rekstrarárinu 2019 hafi numið a.m.k. 4,2 milljónum kr. Með tekjum í þessu sambandi er átti við allar skattskyldar tekjur í rekstrinum að frátöldum hagnað af sölu rekstrareigna.
4. Ekki í vanskilum með opinbergjöld og gögnum skilað. – Skilyrði er að rekstraraðili sé ekki í vanskilum með opinbergjöld, skatta og skattasektir sem komnar voru á eindaga fyrir lok árs 2019. Það telst til vanskila í þessu sambandi ef gjöld og skattar sem greiða átti á árinu 2019 voru ógreidd í lok árs þótt gerð hafi verið greiðsluáætlun eða samningur um greiðslu eftir þann tíma. Rekstraraðili veriður einnig að hafa skila skattaframtali og öðrum skýrslum og gögnum á tilskildum tíma sl. þrjú ár áður en umsókn um styrk barst eða síðan starfsemi hófst, sem og ársreikningum eftir því sem við á og upplýst um raunverulega eigendur félags. Álagðir skattar og gjöld mega ekki hafa verið byggð á áætlunum þ.m.t. staðgreiðsla og virðisaukaskattur á árinu 2020.
5. Ekki gjaldþrotaskipti eða slit.- Skilyrði að rekstraraðili hafi ekki verið tekinn til slita eða bú hans til gjaldþrotaskipta.
Fjárhæð lokunarstyrks skal vera jafnhá rekstrarkostnaði rekstraraðila á tímabilinu 24. mars til og með 3. maí 2020, þó aldrei hærri en 800.000 kr. á hvern launamann sem starfaði hjá rekstraraðila í febrúar 2020, og að hámarki 2,4 milljónir kr. á hvern rekstraraðila.
Fjárhæð viðbótarlokunarstyrks hjá sundlaugum skal vera jafnhá rekstrarkostnaði rekstraraðila á tímabilinu 4. maí til og með 17. maí 2020, þó aldrei hærri en 270 þús. kr. á hvern launamann sem starfaði hjá rekstraraðila í febrúar 2020, þó að hámarki 810 þús. kr. á hvern rekstraraðila.
Fjárhæð viðbótarlokunarstyrks hjá skemmtistöðum, krám, spilasölum og líkamsræktarstöðvum skal vera jafnhá rekstrarkostnaði rekstraraðila á tímabilinu 4. maí til og með 24. maí 2020, þó aldrei hærri en 400 þús. kr. á hvern launamann sem starfaði hjá rekstraraðila í febrúar 2020, þó að hámarki 1,2 millj. kr. á hvern rekstraraðila.
Hægt er að fylla út umsóknir á island.is eða hafi eitthvað af nánari skilyrðum ekki verið uppfyllt í vor en er það núna er hægt að senda beiðni á [email protected] en eftir farandi þarf að koma fram í umsókninni
• Fjöldi starfsmanna í febrúar 2020
Upplýsingar um rekstrartekjur og kostnað (án virðisaukaskatts ef aðili er í virðisaukaskattskyldri starfsemi).
• Allar rekstrartekjur ársins 2019
• Allar rekstrartekjur í apríl 2019
• Allar rekstrartekjur í apríl 2020
• Allan rekstrarkostnað sem féll til á tímabilinu 24. mars 2020 til og með 3. maí 2020, þ.e.
o Laun
o Önnur launatengd gjöld
o Rekstrarkostnaður sem má innskatta
o Rekstrarkostnaður sem má ekki innskatta
(Ef greiddur var kostnaður fyrir allt árið á tímabilinu þá þarf að hlutfalla hann).
• Tegund starfsemi.