24/05/2024
Nokkur góð ráð frá skattinum varðandi álagningarseðilinn fyrir tekjuárið 2023.
Álagning einstaklinga 2024, vegna tekna ársins 2023, hefur verið birt á þjónustuvef Skattsins 🥳
Lítum aðeins á nokkra gagnlega fróðleiksmola 🧊
📌 Inneignir verða greiddar út 31. maí. Ef engar upplýsingar um skráðan bankareikning liggja fyrir er hægt að skrá nýjan eða breyta fyrri skráningu á þjónustuvef Skattsins.
📌 Skuld eftir álagningu er skipt niður á sjö gjalddaga. Innheimta skulda fer í gegnum launagreiðendur. Þeim er send krafa um að draga skuld frá launum hvers mánaðar.
📌 Þau sem vilja skipta greiðslunni á lengra tímabil geta gert greiðsluáætlun á island.is Ferlið er aðgengilegt bæði á íslensku og ensku.
📌 Niðurstöðu álagningar má kæra með því að senda inn beiðni um leiðréttingu á þjónustuvef Skattsins. Þar er hægt að gera grein fyrir þeim efnisatriðum sem þarf að breyta á framalinu sem liggur til grundvallar og senda viðbótargögn máli þínu til stuðnings.
📌 Ef þú átt eftir að skila framtali þarf ekki að örvænta. Framtalið þitt er enn aðgengilegt á þjónustuvefnum. Þú þarft bara að skrá þig inn og skila. Framtalið verður þá tekið fyrir sem kæra og þú færð bréf þegar niðurstaða liggur fyrir.
📌 Hvers vegna skulda ég? Því er ekki auðvelt að svara. Flest þurfa að greiða útvarpsgjald og gjald í framkvæmdasjóð aldraðra. Ef þú skuldar umfram gæti verið vert að skoða hvort þú hafir nýtt of mikinn persónuafslátt á síðasta ári, greitt í röngu skattþrepi eða fengið tilfallandi verktakagreiðslur eða styrki?
📌 Ef þú skilur ekkert hvernig á að lesa út úr álagningarseðlinum þá höfum við
🎥 leiðbeiningarmyndband fyrir þig: https://www.youtube.com/watch?v=WmUm3lLT40k
📌 Ef það er eitthvað fleira sem þig vanhagar um má spyrja spjallmennið 🤖 Ask, slá á þráðinn í ☎️ síma 442 1000 eða senda okkur fyrirspurn ✉️ https://www.skatturinn.is/hafa-samband