INext

INext Þegar árangur skiptir máli. Mjög öflug bókhalds- og tölvuþjónusta sem byggir á áratuga reynslu auk margra ára háskólanáms. Guðmundur R. M.a.

Við höfum tekist á við ansi fjölbreytileg verkefni. er reglulegt bókhald, launaútreikningar, VSK-skil, staðgreiðsluskil, Allar skilagreinar til sjóða, Ársreikningar fyrir ehf, sf og einstaklinga, skráningar hlutafélaga, samskipti við launþega / verkalýðsfélög og auðvitað einka framtöl. En þar fyrir utan hef ég verið að stússa í tölvumálum og raunar markaðsmálum.

06/07/2026

Hverjar eru líklegar afleiðingar þess að skipta um gjaldmiðil, fyrir Íslendinga ?

Til þess að átta sig á því, getur veirð gott að líta til smærri þjóða, sem hafa gert nákvæmlega það. Bæði þeirra sem hafa tekið upp Evru og Dollar.

Í fyrsta lagi lækka vextir verulega. Ekki bara "nafnvextir" heldur líka raunvextir (vextir umfram verðbólgu). Verðtryggingar verða ekki nauðsynlegar. Sparnaður vex og fjárfestingar. Allt leiðir þetta til aukins hagvaxtar og virkar eins og vítamínsprauta á hagkerfið.

En það sem mér finnst verulega vanta á Íslandi, er traust og verðskyn. Verðsamráð, ýmis konar og duldar verðhækkanir, eru auðveldari. Minni samkeppni í markaðshagkerfi, eins og því íslenska dregur úr velferð og hagur heimila versnar.

Því er það raunar líka merkilegur andskoti að Alþyngi skuli hafa sett lög um takmörkun á samkeppni. Það eru sömu flokkar sem gerðu það og eru á móti samningum við ESB. Þeim fannst og finnst sjálfsagt að stór hluti matar markaðar, sé undanþegin og þar megi samráð og einokun vera reglan. Ekki treysti ég því fólki til góðra verka, þó ásetningurinn hjá þeim hafi vafalítið verið góður.

Eftir áratuga stjórnun sumra, erum við með landbúnaðarkerfi árgerð 1950, viðvarandi verðbólgu síðustu 100 árin og "gjaldmiðil" sem virkar ekki, nema að hluta.

TACO er alltaf TACO.  Sem sagt:  Ekkert stenst, ekkert í lagi og allt í pati.  Engin heilstæð hugsun af neinu tagi.
19/06/2026

TACO er alltaf TACO. Sem sagt: Ekkert stenst, ekkert í lagi og allt í pati. Engin heilstæð hugsun af neinu tagi.

Ekkert verður af fyrirhuguðum viðræðum Bandaríkjanna og Írans sem áttu að hefjast í Sviss í dag. Varaforseti Bandaríkjanna er sagður hafa hætt við á flugvellinum eftir að fréttist af árásum Ísraela á Líbanon í nótt.

Spurt er:  Munu vextir lækka við inngöngu i ESB ?Stutta svarið Já.Langa svarið:  Seðlabankinn var að hækka vexti.  Við þ...
29/05/2026

Spurt er: Munu vextir lækka við inngöngu i ESB ?

Stutta svarið Já.

Langa svarið: Seðlabankinn var að hækka vexti. Við það hækkuðu allir vextir á Íslandi, nema verðtryggðir vextir (að hluta). Við inngöngu í ESB fengjum við Evru. Peninga sem hægt væri að nota alls staðar, án þessa að skipta :) Vextir Seðlabanka Evrópu eru um 2%, en ekk 7,75% eins og hér á landi. EF Aðild hefði engin áhrif á vexti á Íslandi, hefur vextir ekki átt að hækka núna hjá öllum !!!

EN er hægt að gera þetta án þess að ganga í ESB ? Það hefur ekki ennþá tekist eftir rúmlega 100 ára tilraunir til þess. Jónas Haraldz, fyrrum bankastjóri Landsbankans, benti á hvernig örgjaldmiðlar eins og krónan, haga sér og hvað það kostar þjóðina að vera með svoleiðis.

Fyrir utan beinan kostnað, í formi hárra vaxta, er gríðarlegur óbeinn kostnaður. Það er vegna þess, að gjaldmiðill á að "virka með tilteknum hætti", sem krónan er ekki og hefur aldrei verið að gera ! Það er dálítið langt mál að fara út í alla þá þætti.

Lét gervigreindina veiða þetta upp fyrir mig, en Jónas var einn virtasti hagfræðingur landsins á sínum tíma: "Á efri árum varð Jónas sífellt gagnrýnni á stöðu íslensku krónunnar sem sjálfstæðs gjaldmiðils. Hann taldi að smæð íslenska hagkerfisins gerði krónuna viðkvæma fyrir sveiflum og að Ísland ætti að taka þátt í stærra myntsamstarfi. Í fyrirlestrum og viðtölum lagði hann áherslu á að Ísland þyrfti að tengjast sterkari gjaldmiðli og studdi síðar aðild að Evrópusambandinu og upptöku evru." Þess má geta að Jónas var sjálfstæðismaður, en yfirgnæfandi meirihluti hægrimanna í Evrópu eru mjög fylgjandi ESB... nema í UK og Íslandi (Sjálfstæðisflokkur - Viðreisn fylgjandi).

Þess má geta að gerðar hafa verið fjölda margar tilraunir til að vera með "fast gengi". Lengi bundið við dollar. Það hefur aldrei gengið. Gengið var þá fellt reglulega...

EN við verðum auðvitað að sjá hvað er í boði. Nokkuð ljóst að fólk er ekki að fara að samþykkja samning, sem felur í sér afsal á stjórn fiskveiða við landið ! Þó að við ráðum þar raunar litlu núna. 20 fjölskyldur á Íslandi eiga nær allan kvóta og stóran hluta af öðrum rekstri á Íslandi.

„Þau skuldugri og tekjulægri eru ekki helstu orsakavaldar verðbólgunnar, heldur frekar hin tekjuhærri og eignameiri, sem hafa meira umleikis,“ skrifar Stefán Ólafsson.
Lesa: https://hmld.in/FGwL

06/05/2026

🍗Hvað ætlið þið að hafa í kvöldmat?
Í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunnar kemur fram að matarverð í Finnlandi og Svíþjóð lækkaði um 25 - 30% eftir að löndin gengu í ESB. Í Noregi og á Íslandi hækkaði matvöruverð á sama tíma, eða lækkaði mun minna.

01/05/2026

Til hvers að úthýsa bókhaldi, skatta- og launavinnslum ?

Það sem vinnst er m.a.:

Þú ert með bókhalds- og skattasérfræðing á þínum snærum, sem þú getur alltaf leitað til og veit nánast allt. Þú þarft því ekki að hafa mikla þekkingu á skattarétti eða bestu aðferðum við bókhald.

Kostnaður er oftast mun lægri en af því að ráða starfsmann, nema fyrirtækið sé þeim mun stærra. Og engin skuldbinding.

Þú þarf ekki að fylgjast með breytingum á skatta- og launaumhverfi fyrirtækisins. Þú ert með mann í því.

Þægilegt að vita að alltaf sé allt í 100% lagi hjá þér.

Hafðu samband í [email protected] eða í síma 7725533.

16/04/2026

Það er rétt að benda á að að við getum aðstoðað þig við að færa bókhaldið sjálf /ur. Komið á staðinn eða leiðbeint í gegnum tölvupóst og síma. Kostar ekki mikið. Þannig að ef þú vilt færa en treystir þér ekki alveg til þess, er um að gera að hafa samband. Mikil reynsla og þekking til staðar. Og þekking á skattalögum o.fl.

Þetta er m.a. hægt að gera með því, að þú færir það sem þú treystir þér til en setur fylgiskjölin sem þú ræður illa við fremst í möppuna, og svo kem ég og aðstoða. Nú eða tengist tölvunni þinni, ef það hentar. Ég kann ekki á öll bókhaldskerfi heimsins, en vandinn sem menn eru að fást við, er yfirleitt óháður kerfinu sem slíku. Ég mundi því bara afrita bókhaldslyklana og þá er ég góður... Ég hef raunar unnið á ca 10-12 mismunandi bókahaldskerfi og slatta af launakerfum.

Sama sagan með launin. Þar get ég aðstoðað. Komið í fyrstu skiptin á staðinn og svo leiðbeint með öðrum aðferðum.

Já.  Bara eina ferðina enn:  Það kosta helmingi minna að aka til Akureyrar á rafbíl, en dísel, bensín eða tengi twin.  H...
16/04/2026

Já. Bara eina ferðina enn: Það kosta helmingi minna að aka til Akureyrar á rafbíl, en dísel, bensín eða tengi twin. Helmingi minna... Sem sagt: Ókeypis gisting á Akureyri fyrir mig, en ekki þig :)

Þá erum við að tala um það sem heitir "beinn breytilegur kostnaður" eða líka viðbótar kostnaður. Þegar Jón borgar 25000 fyrir langferð er ég að borga a.m.k. helmingi minna.

Þess vegna skiptir það máli fyrir velferð fólks, að það komist leiðar sinnar á rafmagni. Sérstaklega mikilvægt fyrir fólk sem býr úti á landi.

Síðasta ríkisstjórn setti 1 miljarð í bílaleigur... til að rafbílavæða. Þó ekki væru til hleðslustöðvar. Pínulítið galið og virkaði eðlilega alls ekki. Góð regla: Hugsa fyrst og framkvæma síðan.

Address

Blöndubakki 13
Reykjavík
IS109

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when INext posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to INext:

Share

Category