25/10/2024
Á miðvikudaginn 23. október héldum við okkar fyrsta viðburð á nýju starfsári í höfuðstöðvum Arion banka.
Á viðburðinum töluðu Harpa Hjartardóttir og Róbert V Ásgeirsson, greinendur hjá Stefni, um starfsemi sjóðastýringar. Eva Rós Birgisdóttir, jr sjóðstjóri, kynnti eignastýringu hjá lífeyrissjóðum og hvernig hún er frábrugðin sjóðastýringu. Að lokum hélt Ellen Hine, hlutabréfamiðlari hjá Arion banka, erindi um starfsemi verðbréfamiðlunar.
Takk Arion banki fyrir okkur og takk allir fyrir komuna, við hlökkum mikið til að sjá ykkur á næsta viðburði!
-Dominika Ewa Ostaszewska, Steinar Björnsson, Silvía Rose Gunnarsdóttir, Rebekka Berta Hanson, Eiríkur Þór Björnsson