18/02/2025
JÖBB ehf er stofnað og rekið af mér, Jóhanni Erni B. Benediktssyni. Ég hef starfað sem fjármála- og rekstrarstjóri fyrirtækja síðustu 11 ár og að auki hef ég verið ráðgjafi hjá yfir 50 fyrirtækjum.
Ég er lærður viðskiptafræðingur, með löggildingu verðbréfamiðlara, MBA gráðu frá Háskóla Íslands og tók framhaldsnám í stjórnun alþjóðafyrirtækja í Frakklandi.
Ég starfaði lengi sem fjármála- og skrifstofustjóri hjá fasteignasölu og hef því verið mikið viðriðinn húsnæðislánaráðgjöf.
Ekki hika við að hafa samband við mig ef þú telur að ég geti orðið þér að liði.