Félag löggiltra endurskoðenda - FLE

Félag löggiltra endurskoðenda - FLE Fagfélag endurskoðenda FLE er til húsa á Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík. Tölvupóstfang er [email protected] og síminn er 568 8118.

Í febrúar voru drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ársreikninga birt í samráðsgátt. Breytingarnar varða s...
09/04/2026

Í febrúar voru drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ársreikninga birt í samráðsgátt. Breytingarnar varða stærðarmörk félaga, endurskoðunarmörk, skilafresti og fleira. Níu umsagnir bárust um frumvarpsdrögin.

Eftir yfirferð umsagna og breytingar á frumvarpinu var það svo lagt fram á Alþingi. Hægt var að senda inn umsagnir um frumvarpið og lauk fresti til þess 8. apríl. Níu umsagnir bárust um lagafrumvarpið, þar á meðal umsögn frá álitsnefnd FLE.

Sjá nánar í frétt hjá FLE:

Í febrúar voru drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ársreikninga birt í samráðsgátt ...

Skattadagur FLE var haldinn í lok janúar í salnum Háteig á Grand hóteli.Elín Hanna Pétursdóttir, formaður FLE setti ráðs...
27/02/2026

Skattadagur FLE var haldinn í lok janúar í salnum Háteig á Grand hóteli.

Elín Hanna Pétursdóttir, formaður FLE setti ráðstefnuna og afhentu þau Unnar og Elín blómvendi til þeirra endurskoðenda sem hlutu löggildingu í desember sl.

Stefán Skjaldarson, sviðsstjóri álagningarsviðs Skattsins, fór yfir það sem er efst á baugi hjá ríkisskattstjóra.

Guðbjörg Þorsteinsdóttir, lögmaður hjá Deloitte, fjallaði um samspil skatta og reikningshalds.

Jóhannes Eiríksson, stofnandi og framkvæmdastjóri Lagavita, spurði hvort að gervigreindin geti orðið leikbreytir í störfum endurskoðenda?

Guðrún Björg Bragadóttir, KPMG, fjallaði um nýlegar skattalagabreytingar.

Ráðstefnustjóri var Ágústa Katrín Guðmundsdóttir, endurskoðandi.

Takk fyrir að taka þátt í þessum skemmtilega degi með okkur!

Níu umsagnir bárust vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um ársreikninga en umsagnarfrestur rann út 20. febrúar sl. Brey...
23/02/2026

Níu umsagnir bárust vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um ársreikninga en umsagnarfrestur rann út 20. febrúar sl. Breytingarnar varða stærðarmörk félaga, endurskoðunarmörk, skilafresti og fleira eins og nánar má lesa um í frétt á heimasíðu FLE.

Níu umsagnir bárust vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um ársreikninga en umsagnarfrestur ...

Á heimasíðu FLE er að finna ítarlega frétt um fyrirhugaðar breytingar á lögum um ársreikninga sem varða stærðarflokkun f...
04/02/2026

Á heimasíðu FLE er að finna ítarlega frétt um fyrirhugaðar breytingar á lögum um ársreikninga sem varða stærðarflokkun félaga, skilafresti á ársreikningum, endurskoðunarmörk o.fl.

Þann 2. febrúar voru drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ársreikninga ...

Þrjár umsagnir bárust vegna áformaskjals um lagasetningu sem varðar lög um ársreikninga en umsagnarfresti lauk í gær. Um...
02/02/2026

Þrjár umsagnir bárust vegna áformaskjals um lagasetningu sem varðar lög um ársreikninga en umsagnarfresti lauk í gær. Um fyrirhugaðar lagabreytingar má lesa nánar hér 👇

Þrjár umsagnir bárust vegna áformaskjals um lagasetningu sem varðar lög um ...

Nú í janúar gáfu Evrópusamtökin Accountancy Europe út samantekt þar sem endurskoðunarmörk í 32 löndum í Evrópu eru borin...
27/01/2026

Nú í janúar gáfu Evrópusamtökin Accountancy Europe út samantekt þar sem endurskoðunarmörk í 32 löndum í Evrópu eru borin saman og breytingar á mörkum frá árinu 2021 dregnar fram en það ár gáfu samtökin síðast út sambærilega samantekt. FLE er aðili að Accountancy Europe og Ísland er með í samanburðinum.

Nú í janúar gáfu Evrópusamtökin Accountancy Europe út samantekt þar sem endurskoðunarmörk í 32 löndum í Evrópu eru borin saman og breytingar ...

FLE hefur ákveðið að senda kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna áritunar ríkisendurskoðanda í ársreikningi Isavia, eft...
18/12/2025

FLE hefur ákveðið að senda kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna áritunar ríkisendurskoðanda í ársreikningi Isavia, eftir að atvinnuvegaráðuneytið vísaði í síðustu viku frá stjórnsýslukæru vegna málsins í ljósi skorts á aðild.

„Það hlýtur að varða hverja lögverndaða fagstétt verulegum hagsmunum að ófaglært fólk geti ekki gengið í þeirra störf. Þetta á jafnt við um endurskoðendur og aðrar fagstéttir svo sem lækna, rafvirkja og lögmenn.“

„Það hlýtur að varða hverja lögverndaða fagstétt verulegum hagsmunum að ófaglært fólk geti ekki gengið í þeirra störf.”

FLE vill vekja athygli á þeirri ákvörðun Seðlabankans fyrr í þessum mánuði um að gamlársdagur verði framvegis ekki banka...
17/12/2025

FLE vill vekja athygli á þeirri ákvörðun Seðlabankans fyrr í þessum mánuði um að gamlársdagur verði framvegis ekki bankadagur.

„Ljúka þarf greiðslum sem eiga að tilheyra árinu 2025 eigi síðar en hinn 30. desember nk. Kröfur sem þurfa að greiðast á árinu 2025 þurfa jafnframt að hafa eindaga eigi síðar en þriðjudaginn 30. desember. Allar færslur gerðar 31. desember 2025 verða bókaðar 2. janúar 2026.“

Við viljum vekja athygli á þeirri ákvörðun Seðlabankans fyrr í þessum mánuði um að gamlársdagur ...

Í þessari nýju skýrslu frá Accountancy Europe er fjallað um það hvernig eignarhald þriðja aðila, þar með talið einkafjár...
16/12/2025

Í þessari nýju skýrslu frá Accountancy Europe er fjallað um það hvernig eignarhald þriðja aðila, þar með talið einkafjárfestingar, er að móta evrópskan reikningsskila- og endurskoðunargeira.

Eins og fjallað var um þessari frétt á heimasíðu í ágúst gaf Accountancy Europe síðastliðið sumar út mjög athyglisverða samantekt ...

Fyrr í þessum mánuði fengu sextán einstaklingar löggildingu til endurskoðendastarfa. Félagið óskar þeim innilega til ham...
16/12/2025

Fyrr í þessum mánuði fengu sextán einstaklingar löggildingu til endurskoðendastarfa. Félagið óskar þeim innilega til hamingju og velfarnaðar í störfum sínum.

Fyrr í þessum mánuði fengu sextán einstaklingar löggildingu til endurskoðendastarfa. Félagið ...

Ársreikningaskrá mun þann 16. desember birta áhersluatriði sín í eftirliti fyrir þau félög sem beita ársreikningalögum o...
02/12/2025

Ársreikningaskrá mun þann 16. desember birta áhersluatriði sín í eftirliti fyrir þau félög sem beita ársreikningalögum og vera með kynningu á áhersluatriðunum þann sama dag. Kynningin verður í húsnæði Skattsins að Katrínartúni 6 kl. 9:15 -10:00. Hér er hægt að skrá sig á kynninguna sem verður jafnframt aðgengileg í streymi og tekin upp.

Verðbréfaeftirlit Evrópu (ESMA) hefur birt áhersluatriði í eftirliti með reikningsskilum útgefenda í kauphöllum fyrir næsta ár. Áhersluatriði ESMA ...

Address

Suðurlandsbraut 6
Reykjavík
108

Telephone

+354 568 8118

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Félag löggiltra endurskoðenda - FLE posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share