10/12/2025
Samkvæmt ákvörðun Seðlabankans verður 31. desember ekki lengur bankadagur. Þetta hefur áhrif á fyrirtæki, stofnanir og aðra, sem gefa út kröfur, greiða laun og framkvæma aðrar greiðslur, sem hér segir:
• Þær kröfur, sem eiga að greiðast á árinu 2025, þurfa að hafa eindaga í síðasta lagi þriðjudaginn 30. desember.
• Klára þarf allar greiðslur, sem tengjast árinu 2025, fyrir lok dags 30. desember.
• Stórgreiðslukerfið verður lokað þann 31. desember.
Þar sem 31. desember verður ekki bankadagur munu allar greiðslur þann dag bókast á 2. janúar 2026.
Greiðslur sem nema 10.000.000 kr. eða hærra þarf að framkvæma fyrir klukkan 16:15 þann 30. desember.
Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu Seðlabanka Íslands:
Reglur um breytingu á reglum um millibankagreiðslukerfi Seðlabanka Íslands nr. 1030/2020.
Tekið úr auglýsingu Arion banka